Svala bloggar

Hæjjjj

04.01.2009 15:42:34 / Svala

Hundablogg...:D

Hæhæ ya’all eða e-ð;)

 Vil byrja á því að óska öllum gleðilegs nýs árs og takk fyrir það gamla;)

Er alveg að fara koma með annál ...en ekki alveg strax nenni því ekki núna EN ég er búin að vera hundanördast hérna á netinu og vá það er til svo mikið af flottum hundum!!! Eigum e-ð að ræða það ... eins og t.d:

 

Bernarfjallahundur
Bernarfjallahundur... Vá bara flottur sko, verða alveg 40-50 kg;) 

St. Bernard
St.Bernard .... Geggjað stórir og flottir, heimilisdýr fyrir allan pakkann og verður sko 55-100 kg!!  

Pomeranian
Pomeranian... okey ég fíla ekki lita smáhunda en þessi er svo ýkt sætur að manni langar bara að kreysta hann:D:D 

Chow Chow
Chow chow.... verða svona meðalstórir eins og Zidane, eða aðeins minni.. og vá þeir eru SVO sætir;)  shar-pei eru líka taldir koma af chow chow


(Emma, mamma hans Zidane.. bara flott tík)
Shar-pei.... ég meina auðvitað... Zidane er sætastur í heimi, en ég var að komast að því að í gamle dage.. hehe í kína (shar-pei er kínverskur hunur) að þeir hafi verið notaðir aðallega sem varðhundar..huhumm.. útskýrir margt, veiði/fjárhundar og slagsmálahundar!!

 

Siberian husky eða Alaskan malamute??
En allavega þá er ég í srökustu vandræðum... mig langar alveg geggjað mikið í husky, siberian husky þá og er búið að langa í þannig hund í mörg ár... en svo var ég að sjá aðra tegund sem heitir Alaskan malamute og hann er geggjaður... stærri en husky og loðnari sem mér finnst æði! En hann er ekki með þessi geggjuðu bláu augu sem ég elska við Siberian husky hunda... svo að veit ekki hvað skal gera... hvað finnst ykkur?
 

Set ég herna myndir af báðum tegundum...

 Alaskan MalamutePhotograph
Okey þetta er semsagt Alaskan malamute;) geggjaður!!!

 
Já og semsagt Siberian husky;) ohh hann er svo flottur sko!!!


En allavega hef ekki meira að segja í bili...
Skiljið eftir spor og ykkar skoðun á hundunum:D

Kv. Svala hundalover!!!:D


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.12.2008 01:17:03 / Svala

Gleðileg jól;)

Vil byrja á því að óska öllum gleðilegra jóla;)

En annars er ég bara rosa ánægð að vera komin heim! Bjó í Rvk hjá Kamillu mínni og Kjartan mínum frá því 9.sept til 22.des svo að þau eru búin að þurfa þola mig í þennan tíma elskurnar mínar;)
Annars erum við Sammi búin að vera dugleg að heimsækja hvort annað.. annars hefði ég heldur aldrei meikað þetta!!!
Var að vinna í LaZENSA allan tíman með skólanum og kynntist æðislegum stelpum þar sem ég sakna núna;) Sérstaklega Andreu minnar og Þóru minnar sem ég var með á hverjum degi;);) bara æðislegar:D
...Svo gekk mér rosa vel í skólanum.. endaði með 9,3 í lokaeinkunn aðeins 0,1 frá því að dúxa, vantaði mætingu upp á dúxið.. var veðurtept einu sinni og veik einu sinni, en ég var með hæstu einkunn úr verklega hlutanum (prófunum) svo að er sátt við það:D:D

Svo eru náttla jól og aðfangadagur búinn.. Mamma er hérna fyrir vestan og við vorum heima hjá Tóta þetta árið, ég , mamma, Tóti, Eydís, Laufey Dís og Hlynur Freyr og það var bara mjög fínt.. gaman að hafa mömmu ;) hef ekki átt jól með henni í mörg ár:p skrítið samt að vera ekki heima hjá Pa og Ra en allt í lagi að breyta til;)
...Við Sammi vorum svo í mat í Súðavík í kvöld.. fengum humar.. Mmmmm.. Fórum í heimsókn til Guðrúnar og Bjögga fyrst þar sem að Zidane hitti mömmu sína Emmu og systur sína Míu;) og vááá hann var svo skotin í Míu algjört krútt.. sleikti hana alla.. inní eyrun, á hnakkan, á sárið hennar, hún var í aðgerð nebbla á hnénu og bara fannst hún æði.. svo sætur strákurinn minn;);) hehe.. en svo stundum fór hann aaaaaðeins ooof neðarlega hehe;) ..dónastrákur..:D haha...

Á morgun er það svo matur heima í Bolungarvík og auðvitað ball annað kvöld;) verður góður dagur á morgun:D 

Og svo ef ykkur langar í förðun verið þá ekki feimin við að hringja í síma 866-0932J
...Tek 3500 kr fyrir förðun.
...svo ætla ég að vera með hópafslátt í smá tíma ef það eru 4-6 saman í hóp og koma saman. Þá er það bara 2000 krJ rosa gott tilboð;);)

Annars hef ég ekki meira að segja í bili... Sammi er orðinn óþolinmóður.. honum vantar knús..:D haha...  

Okey bless í bili..
Kv. Svala Sif8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.12.2008 19:04:20 / Svala

Auglýsing!:D

Smá auglýsing hérna...

Vil aðeins auglýsa mig;)

 

Ég er eins og flestir vita að fara útskrifast úr förðunarskólanum núna í desember og ég verð útskrifuð þegar ég kem heim um jólin;)

Ooog ef þig eða e-rn sem þú þekkir vantar förðun þá bara ekki hika við að hringja og panta tíma í förðun í síma 866-0932J
...Alveg tilvalið fyrir 2. Í jólum böllin og fyrir gamlárskvöld.
...Og svo er alltaf gaman að breyta til að fara “aðeins“ fínni á djammið
J


·    
Ég tek 3500 kr fyrir förðun.

·     EN... verð með hópafslátt fyrir hópa með 4-6
stelpum og þá er verðið 
aðeins 2000 kr á mann
J


Endilega verið í bandi sem fyrst ef þið viljið vera sætar og fínar/sætari og fínni meina ég hehe.. um jólin, nú þegar er ein búin að panta og ég get bara farðar vist margar fyrir 1 kvöld svo að panta fyrr en seinna;)


Kv. Svala Sif
(sem hlakkar rosa til að komast heim í jólafrí að knúsa kallinn:* og familíuna
J)


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 13:55:43 / Svala

smá info!

Hæhæ

ég er fyrir vestan aftur núna þessa helgi;) hehe..  i know...

En allavega ég veit ekki alveg hvort ég komist næstu helgi en ég ætla að reyn að koma! Til þess að geta farðað þær sem ég var búin að lofa að farða fyrir 1.des;) ég ætla allavega að reyna að koma ef ég fæ 6 stelpur til að farða;) þannig að ...en ég allavega verð í bandi við ykkur 4 sem voruð búnar segjast vilja koma;) læt ykkur bara vita í vikunni;);)

En hef ekki mikið meira að segja í bili, vona bara að helgin verði skemtileg;)
...ætla að drífa mig, Lóa mín og Amy mín eru að koma sækja mig:)

Knús, Svala8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 23:48:08 / Svala

Nóg að gera;)

Hæhæ svaka blogg leysi í gangi hérna megin...

Ég er mega hress;) Skólinn gengur eins og í sögu og vinnan er frábær;)

Ég er hérna fyrir vestan núna að knúsa ástina mína;) ekkert betra;)
...Ætla að reyna hitta Lóu mína á morgun og svo stakk hún Amy af suður svo að ég hitti hana ekki mikið núna.. :( en sé skvísuna bara seinna:D

Búin að vera læra eins og ég get.. þarf að skila af mér heimalærdóm eftir tæpar 2 vikur svo að nóg að gera hérna megin;)

Hlakka bara rosa til að koma heim um jólin í faðm familíunnar og kærastans og að hafa það gott...sem förðunarfræðingur;) úúú... sounds good:D:D:D

Allavega hef ekki meira að segja í bili..

Kv. Svala Sif8)



» 3 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 00:35:13 / Svala

Nóg framundan;)

Smá blogg.... á að vera farin upp í rúm að sofa í hausinn minn  EN er í tölvunni og að horfa á hana Opruh vinkonu mína;)

Sammi kom til mín um helgina og við höfðum það rosa rosa gott! Fórum í bláá lónið, í bíó, að heimsækja Halla og Bryndísi prinsessu til Grindavíkur og margt fleira.. já borðuðum AÐEINS og mikið!!;) hehe... en höfðum það rosa gott ;)

Svo er ég að reyna að fara vestur um næstu helgi;) komin sko með farið heim á mánudagsmorgninum EN vantar farið suður;) vonandi kemst ég bara!!!

Svo helgina eftir þessa helgi eða semsagt 1.nóv er ég að fara keppa! Jebb lásuð rétt... er að fara keppa ....í förðun:D bæði fantasíuförðun þar sem vetur er þemað (komin með geggjaða hugmynd) og svo í kvöldförðun:D Hlakka rosa rosa til;) Amy ætlar að koma í bæinn þá og vera kvöldförðunarmódelið mitt:D Veit ekki alveg hvort Lóa ætli líka að koma í bæinn.. vona það!!! ...Nebbla um kvöldið er Haloween partý hjá Erlu.. afmælispartý vegna þess að hún átti afmæli fyrir stuttu síðan:D:D:D:D
...Þannig að þetta verður góður dagur vonandi:D Hlakka rosa til:D

 

 

Svo er ég búin að vera læra dragförðun í skólanum í vikunni og á morgun er ég að fara farða Kjartan:D haha... Brjálað make-up, stór gerviaugnhár og hárkolla:D hahaa... bara gaman gaman gaman:D Skal reyna að setja inn myndir af því :D:D


Annars hef ég nú ekki mikið meira að segja í bili nema jú... ætla að monta mig á því að ég er búin að léttast um næstum því 4 kíló síðan ég flutti suður:D:D... munar nokkrum grömmum í að það séu 4 kíló:D þá er 5 kíló til stefnu:D þangað til um jólin:D Rosa gaman:D

En bless í bili... ætla að fara koma mer í rúmið og hringja í kallinn:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.10.2008 23:05:02 / Svala

Söknuður!

Smá söknuður í gangi hérna!

Sakna Samma ROSA ROSA MIKIÐ!!!

Annars er helgin búin að vera rosa róleg... Búin að vera í Hfj með Kamillu og Kjartani vegna þess að foreldrar hans Kja eru í útlöndum og þau eru með strákana og að passa hundana og nýju litlu hvolpana sem Mugga var að eignast..BARA SÆTIR...:D:D

Átti að fara vinna á laugardaginn og svo í staffa partý með skvísunum í LaSenza.. EN ég vaknaði bara á laugardagsmorgninum með bara ælupest og þvílíkt slöpp ..hringdi mig veika í vinnuna og sofnaði svo aftur og svaf til 4!!! Bara búin á því!

...Varð síðan skárri þegar ég vaknaði og leið á daginn og fór að borða með Auju og svo að rúnta og spjalla og spjalla og spjalla.. rosa næs;) 

Svo í dag er maður bara búin að vera hangsa e-ð... fékk rosa góðan kvöldmat og svo bara að læra... Maður þarf víst að læra þegar maður er í skóla!...

Annars er ég bara að sakna Samma rosa mikið og saknaði líka Amy doldið í gær þegar ég var að tala við hana... EN ég sé Samma á fimmtudaginn og svo amy eftir nokkrar vikur svo að ég þrauka;)

Annars ekki meira í bili, sit hérna uppi í hjónarúmi hjá Kam og Kja vegna þess að netið næst bara hérna inni og þau eru orðin pínu pirr pirr á að hafa mig hérna yfir þeim:p hehe tíhíhí...

Okey bæ, góða nótt, koss og knús;)
Kv. Svala Sif.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 15:41:53 / Svala

Ég er föst!

Hæhæ aðeins að láta heyra í mér;)

Ég er stödd á Ísafirði núna og er föst hérna !!! átti aðfara suður með flugi í gærmorgun!... sem ég væri rosalega sátt við ef ég hefði ekki þurft að fara í próf í skólanum í gær! Svo í kvöld er model tími fyrir eldri konur og ég vona að ég komist svo að ég missi ekki af enn meiru!! Þó svo að ég elski að fá nokkra auka daga með strákunum mínum!

Fór í glys rokk party á laugardaginn heim til Lóu … það var BARA gaman:D:D:D vorum ýkt flottar og rokkaðar:D  Maður þarf að vera oftar með svona þema partý;) 

Annars hef ég nú ekki mikið meira að segja...  Nema að það var rosa gott að fá að komast heim um helgina;) en það hefði verið rosa gaman að komast suður í gær og að taka prófið svo að það fari ekki allt í klessu í skólanum;)

En jú það er eitt í viðbót!!!

Eins og kannski flestir vita er ég að læra förðun í Snyrtiakademíunni í kópavogi og er farin að farða rosa mikið uppi í skóla og komin með góð tök á þessu;)
Svo að ef þig eða e-rn sem þú þekkir vantar förðun þá tek ég 1500 kr fyrir förðunina á meðan ég er að læra;)
Endilega verið ekki feimin við að hringja ef ykkur langar í smá make-up fyrir djammið, veislu, árshátíð, brúðkaup eða bara hvað sem er;)
Svala Sif, s: 866-0932.

Annars er það nú ekki meira í bili..
Kv. Svala Sif.:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 23:17:16 / Svala

Ótitlað:)

Adios amigos og senjorítur líka auðvitað:D:D eða e-ð..;)

 Ég er rosa hress vegna þess...

 ...að Sammi er að koma að heimsækja migí fyrramálið fram á sunnudag:D:D
...ég er búin að missa 2 kíló síðan ég flutti suður ..bara af breyttu matarræði;) bara gaman;)
...mér finnst rosalega gaman í skólanum:D
...og vinnan er skemmtileg líka;)

En yfir í annað:D

Fór vestur um síðustu helgi og var best að hitta Samma minn:*:* og svo ætlaði Zidane ekki að þekkja mig fyrst en svo kom það nú hjá honum og þá fékk ég ekki að fara úr augnsýn;)

...Fórum svo á lokahóf BÍ/Bol og það var rosa gaman bara:D hitti Lóu og Amy mínar æðislegu fyrst það kvöld:D:D ... drakk svoldið mikið vodka/bacardi razz í red bull og var sko mega hress:D:D haha.. geta margir staðfest.. hljóp meira að segja “maraþon” hahaha:D:D bara bara bara gaman!!!

Æðisleg ferð með æðislegu fólki!!:D sakna ykkar:*:*:*

Annars var ég að koma úr skólanum þar sem að Auja mín var módelið mitt og ég gerði hana mega foxy lady:D ... skyggingu og rauðar og svartar varir... vanalega myndi maður mála augun mikið og þá hlutlausar varir á móti eða dökkar varir og hlutlaus augu á móti því EN þar sem að þetta var æfing til að æfa allt.... þá varð að gera þetta svona;) Við stálumst síðan á KFC eftir það um 9:30 leytið ...ýkt óhollar.. en iss það er nú í lagi svona einu sinni;)
Ætla að setja hérna nokkrar myndir af kvöldinu..;):

 
Auja með rauða varalitinn og alla förðunina...


Sama hér, bara horfa niður...


Bara sæt;)


Komin með svarta varalitinn... haha bara kúl:D


Önnur svoleiðis;)


Set þessar með þegar ég farðaði sjálfa mig;) Köld skygging með köldum litum semsagt;)


Horft niður;)

 Ekki meira í bili;) endilega kommentið;)

Þangað til næst:D

Kv. Svala Sif;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

13.09.2008 02:22:35 / Svala

Smá blogg...

Ætla bara að blogga smá... láta aðeins vita af mér...

 

·       Ég er semsagt komin til Reykjavikur... keyrði suður á mánudaginn og byrjaði í skólanum það kvöld;)

·       Skólinn er rosalega skemmtilegur.. ekkert smá gaman allt saman! Geggjað að vera í skóla þar sem að manni finnst gaman að læra ;)

·       Er að vinna í LaSenza í kringlunni á daginn og það er mjög gaman líka;) yndislegar stelpur sem ég er að vinna með alveg hreint og skemmtileg vinna;) búin að sjá fullt af brjóstum nú þegar bara:D haha...

·       Bý hjá Kamillu og Kjartani ...er með mitt sérherbergi hér svo að það er gott;)

·       Er byrjuð að mæta aðeins í sporthúsið.. svolítil breyting frá Stúdíó Dan en það er að venjast;)8) hehe..

·       Sakna Samma alveg gífurlega mikið!!! Hugsa til hans allan daginn ... en það styrkir bara okkur og sambandið meira og maður sér hvað maður á;);) Sakna líka Zidanes litla;) og familíunnar í Bolungarvík;) og Amy minnar fögru;) og bara allra “minna” fyrir vestan;) ..hehe.. smá heimþrá og söknuður í gangi.. en það lagast allt með tímanum:D

·       Fer svo vestur um næstu helgi;)

 

En ekki meira í bili... bara nokkur orð í bili;)

Kv. Svala Sif


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 08:05:03 / Svala

RVK!!!

Kl er átta og er að fara leggja af stað bráðum til Reykjavíkur!! 8|:!:

Vá það er sko geggjað skrítið;) haha... en samt gaman og stressandi á sama tíma:lol:

Byrja í skolanum í kvöld og að vinna á morgun;)

Á eftir að sakna alls fólksins míns hérna heima!

En ekki lengra í bili... þarf að fara gera alles klar!:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2008 11:59:41 / Svala

BLOOOOGG:D

Segir maður að það sé komin helgi ef að það er komin föstudagsmorgun;)  ég allavega lofaði að blogga FYRIR helgi og fyrir mér er núna fyrir helgi svo að mér finnst ég sleppa:D hehe…

Hmmm vá það er svo geggjað langt síðan ég hef bloggað að ég veit ekki hvar ég á að byrja... skipti þessu í tvennt.. það sem er búið og gert og það sem er framundan;)

 

Það sem hefur verið að gerast:

  • Hmm.. byrja bara á verslunarmannahelginni... hún var æði;) Kamilla og Kjartan og Sandra og Raggi komu í heimsókn til okkar:D og það var bara ÆÐI að fá þau;) ...þó svo að Raggi hafi eyðilagt svona pínu smá!!  Raggi og Sandra reyndar fóru svo á sunnudeginum en við hin fórum að djamma það kvöld og hólí mólí hvað Svala Sif var drukkin! Haha:D en það var ógó gaman:D þangað til daginn eftir náttúrlega;) haha...
  • Við Sammi fórum síðan í brúðkaup til Sif og Konna 08.08.08...;) það var rosa gaman og þau voru ekkert smá flott og sæt;) Sif alveg stórglæsileg;) það var bara roslaega gaman:D
  • Mamma fór í meðferð í ágúst og gengur henni bara geggjað vel og er ég stolt af kvinnunni;) hún átti líka afmæli 14.ágúst;)
  • Amy átti síðan líka afmæli 15.ágúst og fórum við í partý þangað:D hún fékk köku og samin texta við lag í afmælisgjöf frá okkur Samma og hún var held ég bara rosa sátt við það :D:D
  • Ragnhildur stjúpmamma átti líka afmæli í ágúst..29.ágúst;)
  • Erla flutti aftur suður í ágúst.. rétt eftir afmælið hennar Amyar... skólinn kallar víst...
  • Zidane litli ljónastrákurinn okkar;) hehe.. fékk sýkingu í bæði eyrað og augað og þurfti að vera með skerm í nokkra daga..ohh vorkenndi honum svoo... en hann var ógiissslega duglegur og er alveg að ná sér aftur;)
  • Sammi er farin að vinna úti í Bolungarvík og er hann svona að byrja að líka það núna;) eina er að ég sé hann ekki fyrr en fyrsta lagi 6 eða 7 á kvöldin... en ég meina I’ll live;)
  • Annars er nú ekki mikið meira að frétta af mér ... frá því í ágúst held ég;) ...  heyrðu jú við Ragnhildur fórum á svona ABBA sýningu þar sem mátti syngja og dilla sér með:D:D djöfull var það gaman... veit að það er önnur svona sýning í kvöld.. ef þið eruð að pæla í að fara þá skuluði gera það:D rosa fjör;) kokteilar á barnum með og alles;);)

 

Það sem er framundan:

  • Byrja á því að BÍ/Bolungarvík strákarnir OKKAR hérna fyrir vestan;) haha erþaggi? ....eru komnir í úrstlit og er leikur á morgun úti í Bolungarvík kl 14:00!!! Það byrjar samt gleði kl 13:00 ..þá verða grillaðar pylsur og málað krakka og svona:D svo að ALLIR að mæta og styðja strákana:D:D:D
  • Á mánudaginn er ég svo bara að fara flytja suður!!! Jebb.. á mánudagsmorgun keyri ég suður ... Samma til mikils ama... En ég er semsagt að fara að flytja fram að jólum.. er að fara í förðunarskóla í Snyrtiakademíunni í Kópavogi og svo verð ég að vinna á daginn í LaSenza í kringlunni;) þannig að ég geti alltaf verið í nýjum “fötum” þegar ég hitti Samma;) hahaha.. nei bara sá auglýsingu frá þeim og sótti um og fékk vinnuna:D Förðunarskólinn er nebbla kvöldskóli og e-vegin verð ég að borga hann upp svo að ...:D En ég mun búa hjá Kamillu minni;) sem á probably eftir að henda mér út svona 5 sinnum.. ef ég þekki okkur rétt:D:D haha..  erum svo góðar við hvor aðra á sitt hvorum landshlutanum og svo rífumst við eins og hundur og köttur þegar við erum mikið saman:D hehe.. neinei.. en við ætlum allavega að vera rosalega duglegar að mæta í ræktina á morgnanna:D verða mjóar og sætar um jólin;)
  • Svo eiga Zidane og Sammi afmæli í mánuðinum:D Zidane verður 1 árs 19.sept;) og Sammi ástin mín verður 26 ára gamalmenni 21.sept;)
  • Annars kemég nú heim í heimsókn aftur helgina sem Sammi á afmæli;) er búin að lofa mér að keppa í sundi á vestfjarðarmótinu sem verður 20.sept;) haha.. það verður sko e-ð...  OG MIG VANTAR GAMALT SUNDFÓLK TIL AÐ KEPPA!!! VANTAR SEM FLESTA TIL AÐ FÁ SEM FLEST STIG FYRIR UMFB:D:D:D:D KOMA SVO TAKA FRAM SKÝLUNA/BOLINN OG SKELLA SÉR Í LAUGINA;)

 

Jæja nenni nú ekki að blogga meira en þetta;) þarf að fara hengja upp aulalýsingar fyrir leikinn á morgun.. fara með skyrtur af Samma í hreinsun og svo í stúddann að hrista af mér speekið með Amy:D ...

Vil komment;) 

Kv.Svala Sif Sig;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 23:41:12 / Svala

Uuuuhhh....

Er aaalveeeg að fara blogga;) haha...

hef bara ekki tíma í augnablikinu þarf að fara knúsa kærastann...

...EN ég blogga fyrir helgi:D promise:D:D:D

Kv. Svala Sif;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2008 21:32:25 / Svala

bloggetí blogg:D

Hæhæhæhæhæhæ…

Veit ekki alveg hvar ég á að byrja...svo langt síðan ég bloggaði … hef þetta svona bara punktablogg.. þá get ég haft þetta svona allt út um allt:D

  • Hmmm... byrja bara á að það gengur rosa vel á herbalife .. er reyndar búin að vera svaka holl með.. og fer alltaf í 45-60 mín með Zidane út að labba/hlaupa og svo í stúdíó dan ...hljóp t.d e-ð um 16km í síðustu viku... EN svo datt tánöglin af í mótmælum svo að ég hef ekkert getað hlaupið í 4 daga or some.. er að verða brjáluð! Fkn líkami..! ;) en það eru næstum 3 kíló farin síðan ég byrjaði svo að það er gott:D:D
  • Ég og Sammi áttum 1 og ½ árs afmæli 14. júlí og við ákvaðum að gera e-ð fyrir hvort annað og þegar eg kom heim úr vinnu þá var ”lagið okkar” í spilun og geggjað fallegt ljóð til mín í tölvunni, rós og Galaxy Carmel;) haha uppáhalds súkkulaðið mitt.. geggjað sætur !!:D hurru ogég var auðvitað búin að plana svaka líka...planið var semsagt í stuttu máli að ...raða kertum inn í íbúðina og inn í svefnhergi ... var búin að panta hjartaköku í bakaríinu og láta skrifa á hana og ætlaði að hafa hana reddí á eldhúsborðinu og vera búin að baka pönnsur þegar hann kæmi heim..vegna þess að hann elskar pönnsur.. og fara í sexý nærföt og bara allan pakkan.. nema hvað!! Ég var aðeins of lengi í SD. Að tala við Auju og fór heim til að gera allt á síðustu stundu og fattaði þá að ég gleymdi að kaupa e-ð í pönnsurnar.. rauk út með bara veskið mitt og ÚPS!!! Læstu óvart þegar ég kom inn !! svo að sammi kæmi ekki heim á meðan ég væri að gera allt klárt!! Ég læst úti með enga bíllykla né lykla að íbúðinni og bara FOCK hugsaði ég... átti eftir að gera allt klárt og sammi að koma heim eftir 40 mín!! Hurru ákvað að hlaupa bara til auju og allt endaði með því að ég fór niður á löggustöð og strákur úr löggunni þurfti að koma með mér hingað heim .. með verkfærakassa og pikkaði upp fyrir mig gluggann.. og þurfti svo að lyfta mér upp í hann og ég alveg sveitt og flott nýkomin úr stúdíóinu.. o mæ... hehe... hurru þakkaði honum fyrir og dreif mig af stað að klára þetta... fer í sturtu og bankar þá ekki sammi þar sem að ég var búin að læsa aftur ... ég sendi hann í ljós.. geggjað ovíös:D haha.. og auja var að tefja hann fyrir mig og addi líka.. haha.. bara fyndið;) en svo náði ég að klára allt á síðasta snúningi og kvöldið var ekkert smá æðislegt og rómó og vá bara geggjað:D:D:D
  • En vá löng saga. Hehe...
  • Hmm.. veit ekki hvað ég á að segja meir...
  • Sandra mín er að halda afmælið sitt í kvöld jú og vá ég vildi að ég væri þar!!! Langar svo að hitta stelpurnar mínar!!en ég spjalla við þær bliiindleeeekaðar í kvöld:D haha...
  • En hurru.. Amy sætabrauð er alveg að fara koma hingað til mín og við erum að fara rúnta og kíkja á langa or some.. svo að ætla að drífa mig í sturtu:D
  • Og já hey er komin með topp:D Erla klippti á mig geggjaða klippingu:D:D rosa ánægð..bara að venjast toppnumennþá:D
  • Allavega ef ég á að ná að blása hann niður og slétta þessar blessuðu krullur þá getur þetta ekki verið lengra í bili:D

 

Bless bless:D:D
Kv.Svala Sif;););)


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.07.2008 00:15:25 / Svala

Herbalife!!!

Hurru kominn tími á blogg….

Fór á ball á laugardaginn með Nýdönsk… það var rosa rosa gaman:D Mér var reyndar sagt frá svaka slagsmálum og svaka drama hjá mörgum og auðvitað slúðri líka daginn eftir sem ég bara tók engan veginn eftir á ballinu!!! Sveif bara um á mínu bleika skýi og skemmti mér rosa rosa vel;) Við Sammi röltum svo bara heim um kortér yfir 3 rétt áður en ballið var búið;) ...svaka skemmtilegt kvöld bara:D

 En nú er mín sko komin í átak.... farin að skrifa í matardagbók og ..... er að fara byrja á Herbalife!!! ...Ég hef sko alltaf verið algjör anti-herbalife manneskja! En mig langar samt að prufa...

...Ég hef alveg fulla trú á því að maður geti bara misst kíló og komis í gott form á því að hreyfa sig og borða hollt... sem að ég gerði einungis fyrir Ungfrú vestfirðir án þess að vera á herbalife eða e-u fljótandi eða whatever.. en O MY GOD hvað það tók á ... ég þurfti virkilega að taka á honum stóra mínum til að missa öll þessi kíló og borða svona hollt!! Enda missti ég þónokkur kíló..  en þúst ég er sko manneskja sem hreyfir sig á HVERJUM degi ...missi eila ekki úr dag.. nema stundum á sunnudögum og ég borða hollan mat en ekki svona öfga öfga hollan eins og fyrir ungfrú vestf. Og ég stend alltaf í stað ... kannski svona 1-3 kíló sem koma og fara eftir vikum... og er orðin heldur þreytt á því svo að mig langar svoldið að prufa þetta.. sjá hvort ég fíli þetta;)
...Samúel ætlar meira að segja að vera með mér í þvi að fá okkur “shake” á morgnanna.. sem er bara gott;) þá peppum við hvort annað upp:D

Allavega hvað finnst þér um herbalife og allt það? Endilega kommentaðu!!!:D langar að sjá hvað fólki finnst um þetta;);)

 En ekki meira í bili ... hroturnar í honum Samma eru svo girnilegar að ég get ekki beðið eftir því að hoppa upp í rúm:D haha...

 Góða nótt..
Leave a comment!
...Svala Sif Sig;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Myndir => gamlar..