Jæja smá blogg til að láta heyra í mér
Helgin var bara fín.. á föstudaginn gerði ég nú ekki mikið...
Á laugardaginn byrjaði ég á því að fara á power-námskeið til hennar Esterar ..ekkert nema gott að gaman ...heyrðu svo fór mín bara beint í bakaríið ...ójá!!! ekki gott.. og var ekki holl það sem eftir var að deginum.. hlakka sko ekki til að láta Ester fá matardagbókina mína á miðvikud. Ég fór síðan heim til Ólafíu og hitti þar hana Amy og Arndísi og svo kom Sigga líka ég farðaði bæði Lóu og Amy.. .geggjað flínar og sætar og ég set inn myndir af því og kvöldinu þegar Lóa er búin að senda mér eða hún bún að setja inn Lóa?Þetta var bara hið fínasta kvöld, ég var reyndar edrú af því ég var að fara vinna 8 morgunin eftir við fórum svo á Edinborg en reyndar ekki fyrr en 2 eða e-ð álíka og það var bara rosa fínt... og þó svo að við vorum ekki þarna nema í rúman klukkutíma þá komust samt sumir á sjens og svona tíhíhíhí...
Ég fór svo í gær að vinna en fékk að fara fyrr til að fara á tilnefningu íþróttamanns ársins í bolungarvík.. ég nebbla var að taka við viðurkenningu fyrir hönd sunddeildarinnar, fyrir það að vera byrjuð að starfa aftur hélt líka nokkurs konar ræðu um sunddeildina og vá god...ég var svo stressuð fyrst.. hehehe þurfti aðeins að segja frá mínum ferli og inní honum fylgir náttla að ég hafi þurft að hætta vegna þess að ég fékk krabbamein og ég tala rosalega sjaldan um það svo að vil meina að það hafi ollið pínu stressi... eða hvað en það lagaðist nú og ég held að fólk hafi alveg skilið migEn Hlynur litli bró fékk líka viðurkenningu fyrir góðan árangur í fótbolta... rosa stolt af kappanum
Annars er nú ekki mikið að frétta skoooommm...
Er búin að ákveða að það verður CELEB-ÞEMA í innflutningspartýinu svona svo að vinir hans Samma þori að mæta hehe.. held nefnilega að þeir mæti frekar dressaðir sem e-r frægur en í glans og glimmer galla hehe.. eða hvað? þó svo að ég veit að stelpurnar hefðu alveg verið til í diskóið ...við höldum bara stelpu diskó-partý seinna...partýið verður 2.eða 3ju helgina í feb ...mun dreifa út boðskortum
En ekki meira í bili... skiljið eftir spor
...Svala Sif Sig...
» 14 hafa sagt sína skoðun
» 6 hafa sagt sína skoðun
Byrja á því að segja að í dag erum við Sammi búin að vera saman í eitt ár!!! eða semsagt ákváðum að 14. jan yrði okkar dagur …Alveg ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða! En við erum allavega ennþá rosalega ástfangin og mér finnst þetta æði
En annars var ég í RVK um helgina ...ætlaði að fara versla húsgögn EN um leið og ég lennti þá hringir Sammi í mig og segir mér að pabbi hafi verið að tala við sig og að fólk í Bolungarvík sem er að flytja væri að reyna losna við húsgögn sem eru bara 2ja ára gömul og eftir að við vorum bæði búin að sjá þau (ég á myndum) þá var það bara ákveðið og þetta er rosalega flott borðstofuborð, hár glerskápur og skenkur sem er reyndar það nettur að við notum sem sjónvarpsskáp.. og allt saman í kirsjuberja lituðum við gaman gaman ......þannig að ég fór bara að versla svona dóterí inn í íbúðina til að gera hana sæta gleymdi samt því sem ég átti að kaupa.. en það kemur allt saman svo er það bara sófi og sófaborð og stofan okkar verður gorgeous eða e-ð
Annars er ekki mikið meira í fréttum ligg hérna uppi í sófa frekar slöpp ..semsagt ekki í skólanum, ömurlegt alveg en ég er að fara mæta á power námskeiðið hjá Ester í dag svo að það er eins gott að ég verði orðin hress þá!!!!! Annars verð ég CRAZY..
Heyrðu jú það er eitt enn.....Sko ætla að halda innflutnings partý ...reyndar ekki fyrr en í febrúar ...en allavega.. ætlaði að hafa bara stelpupartý en ég meina ég get varla haldið innflutningspartý og ekki leyft Samma að vera með !! eða hvað.. mér finnst það asnalegt svo að þeta verður svona bland –partý og það verða valdir aðilar að sjálfsögðu sem fá boðskort en sko ég ætla að hafa þema í partý-inu og það verður annaðhvort :-DISKÓÞEMA eða CELEB-ÞEMA...-Semsagt diskóþemað er þá að allir mæti í fötum frá diskótímabilinu sem þið vitið að er glans og glimmer hehe... -Celeb-þemað er svo hins vegar að þá mæti allir sem e-r fræg manneskja fræg leikkona/leikari, söngkona/söngvari, kvikmyndapersóna... bara e-ð j-YAI6-kA4ljM:http://salon.stage007.com/132/file/profile" alt="" width="130" height="117" /> -nNlOciYIcA2M:http://drawingwomen.files.wordpress.com/2007/04/0638-snow-white.jpg" alt="" width="82" height="124" />
Eða hver sem er fullt til að celebrity'sallavega kommentiði plííís... um það sem ykkur finnst sniðugara
Kveð í bili..
» 12 hafa sagt sína skoðun
Hvað er í gangi???? …nú ég bara ekki skilja nei! það eru 347 búnir að koma inn á síðuna mína bara í dag... og það eru 4 manneskjur búnar að kommenta á síðasta blogg ...sem er búið að vera hérna í dag og gær.. allavega ekki að kvarta ...Mjög ánægð með hvað það eru margir búnir að kíkja á mig
En í staðin vil ég biðja ALLA sem koma hérna inn á að svara spurningunni í skoðanakönnuninni!
Þangað til næst......Svala Sif Sig
» 8 hafa sagt sína skoðun
Heyrðu ég var svona að spá í að koma með smá annál um árið 2007 …hvernig lýst mannskapnum á það? Er búin að vera skoða síður og folk að gera svona annála og mér finnst það rosa sniðugt og ætla því að aba
Janúar:3.janúar ákvað ég að flytja vestur og 4.janúar fyllti ég litlu bleyjuna mína (bílinn) og keyrði vestur hehe... skráði mig í nýjan skóla og allan pakkann hehe....14.janúar ákváðum við Sammi að við byrjuðum saman svo að við förum að vera búin að vera saman í eitt ár
Febrúar:Uuuuuuu... Held að ég hafi verið beðin þann mánuð um að koma í ungfrú Vestfirðir eða hvort það hafi verið í endann janúar..man ekki en ég byrjaði að æfa á fullu í þessum mánuði og kynntist þar af leiðandi fullt fullt af nýju fólki sem var ekkert nema æði ...og varð meira og meira skotin í Samma mínum
Mars: Einkenndist af mikilli líkamsrækt og þá sko meina ég mikilli mikilli líkamsrækt ..og miklum æfingum fyrir ungfrú vestfirði.. en það var ekkert nema krefjandi og skemmtilegt
Apríl:4.apríl var minnir mig svo ungfrú vestfirðir keppnin sjálf Ohh það var rosa gaman... ég vann tvo titla sjálf ..Netstúlkan og vinsælasta stúlkan...valin af hinum stelpunum.. ekkert nema æðislegar stelpur sem að eru ennþá vinkonur mínar í dag og mér finnst það frábærtdaginn eftir fór ég svo út að borða með vinahóp samma og kærustum/unnustum.. og kynntist frábæru fólki þar líka Svo komu páskar ...og þið vitið þá er borðað og haft það gott...heyrðu já er að gleyma..Sammi fór þarna til portúgals og kom heim rétt fyrir keppni.. en þá var einmitt sem ég skrifaði hálfgera “sögu” um samband okkar fram að því (í algjöru væmniskasti að sakna samma..hehe) og sagðist elska hann í fyrsta skipti.. á blaði.. af þvi að ég þorði ekki að segja það með orðum.. haha... en ógeðslega væmið!!!! Næsti mánuður!!
Maí:Prófin í maí... gekk ekkert allt of vel!! Ekki mikið búið að læra fram að þessu!!!...en svo átti ég afmæli 9.maí ...fékk rosalega flott hálsmen frá ástinni minni ...8.júní eignuðust Tóti bróðir og Eydís lita prinsessu sem þau skírðu Laufey DísHmm... held að það sé ekki neitt meira merkilegt í þessum mánuði! Eða jú ég byrjaði að vinna í bakaríinu 15.maí og kynntist þá Öggu (Agnesku).. algjört gull sú stelpa
Júní:Í júní var unnið rosalega mikið .. og tekið sig aftur á í stúdíóinu og matarræðinu með Öggu ... Stefán litli bró átti afmæli 14.júníJúlí:Vann mikið ennþá hehe.. og byrjaði á skammtímavistuninni með einhverf börn fannst það rosalega gaman.. !!! og gefandi ...Hélt áfram að vera dugleg og bara naut sumarsins... shit man ekki meira sko..hehehe...Tóti bró afmæli 1.júlí
Ágúst:Í ágúst hætti ég að vinna fastri vinnu í bakaríinu og við Sammi fórum út til Chania á Krít..og það var ÆÐI!! Afslöppun eftir vinnusamt sumar og haft það rosa rosa gott á 5 stjörnu hóteliMamman átti svo afmæli 14.ágúst og stjúpmamman 29.ágúst
September:Var byrjað aftur í skólanum sem var mjög þægilegt að vissu leyti ...fyrir utan heimalærdóm byrjaði í 28 einingum svo að það var strax brjálað að gera hjá minniSammi átti afmæli svo 21.sept og ég gaf honum þríkrossinn og inneign upp í utanlandsferð handa honum og svo aðra fyrir mig...Sammi hélt svo veislu þar sem að kappinn varð 25 ára.. þar sem að það var rosa góður matur og fullt af skemmtilegu fólki
Október:Jiii það gerðist held ég ekki mikið merkilegt..eða hvað.. hehe... man ekki
Nóvember:Við fórum suður í nóvember.. keyptum eiginlega allar jólagjafirnar okkar og fórum í afmæli til Kjartans sem varð 20.. þessi elska annars gerðist nú ekki mikið annað þennan mánuð minnir mig..Heyrðu jú pabbi átti afmæli 21.nóv og Hlynur litli bró 30.nóv
Desember:Pófin byrjuðu mánuðinn og ég náði öllu... öllum 28 einingunum jeijj... prófavikan einkenndist af prófaljótunni og litlum svefni!! ..sem reyndar borgaði sig svo...Jórunn Inga varð 1 árs 14.des...Svo auðvitað jólin .. þar sem að ég fékk Zidane minn litla voffann minnog áramót ... OG jú Sammi fluttum inn í nýju íbúðina okkar á Túngötu 3 ...á þorláksmessu ...þar sem við erum að koma okkur fyrir með nýju litlu familíunna okkar
Svo gerðist auðvitað meira sem ég minnist ekki á nokkrar reykjavíkurferðir... djömm.. og margt fleiraOg já auðvitað.. byrjaði að þjálfa sund í byrjun árs ...sem að ég elska!!! Ég elska að geta kennt krökkum að synda.. e-ð sem ég hafði yndi af því að gera!
En ég vil þakka öllum fyrir árið sem er að líða ...öllum sem komu því við að minni hálfu
Nýja árið mun svo hljóma e-vegin svona... ég mun:-halda áfram að vera svona rosalega ástfangin-halda áfram að vera duglega að hreyfa mig og missa um 6-7 kíló verða úber dúber beib erþaggi-vera dugleg að fara út að labba með Zidane minn-útskrifast í vor og þá vonandi ekki bara með slefi heldur með stæl-gera íbúðina okkar rosa rosa flotta-fara suður í 3 og ½ mánuð að læra förðun (ef húsbóndinn gefur leyfi)-Halda sundmót og keppa með krakkana á sundmótum..vera góður þjálfari-og margt margt fleira ..allt eða flest gott vonandi
Sjáumst vonandi hress og kát á nýju ári og gleðilegt nýtt ár
Kv. Svala Sif
» 7 hafa sagt sína skoðun